4.9.0 Yfirlit kennslustundar

Í þessari kennslustund notar þú skilning þinn á meðalbreytingarhraða til að túlka og búa til gröf falla. Gröfin eru ekki alltaf eins skýrt skilgreind og áður og þau lýsa flóknari aðstæðum úr raunveruleikanum.

Að lokinni kennslustund getur þú:

  • útskýrt meðalbreytingarhraða falls út frá aðstæðum.
  • lýst helstu eiginleikum grafs og útskýrt hvað þeir þýða í aðstæðum.
  • teiknað drög að grafi sem sýnir helstu eiginleika aðstæðna út frá lýsingu eða myndrænni framsetningu.

Þessi verkefni hjálpa þér að ná markmiðunum:

  • 4.9.1: Að greina og bera saman eiginleika grafa
  • 4.9.2: Að túlka gröf án mælieininga
    • 4.9.2: Sjálfspróf
    • 4.9.2: Ítarefni
  • 4.9.3: Að teikna drög að gröfum falla
    • 4.9.3: Sjálfspróf
    • 4.9.3: Ítarefni
  • 4.9.4: Að setja stærðir í samhengi við aðstæður
  • 4.9.5: Að nota orðalýsingar til að búa til gröf falla

Að lokum leysir þú æfingar og rifjar upp kennslustundina.

  • 4.9.6: Æfingar
  • 4.9.7: Samantekt kennslustundar