11 Núll og jákvæðar heiltölur
Inngangur

Efnisyfirlit kafla
Inngangur
Þótt börn læri snemma að telja krefjast góð tök á stærðfræði, fræðigreininni um tölur, stöðugrar athygli. Ef langt er síðan þið lærðuð stærðfræði getur verið gagnlegt að rifja upp undirstöðuatriði. Í þessum kafla beinum við sjónum að tölum sem notaðar eru til að telja ásamt reikniaðgerðunum fjórum—samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu. Einnig verður fjallað um nokkur hugtök sem notuð eru í allri bókinni.