77 Hornafallasamsemdir og -jöfnur
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- deyfð sveifluhreyfing
- sveifluhreyfing sem líkist lotubundinni hreyfingu og einfaldri sveifluhreyfingu, en graf hennar verður fyrir áhrifum deyfingarstuðuls, það er áhrifa sem valda orkutapi í hreyfingunni, svo sem núnings
- tvöföldunarformúlur
- samsemdir sem eru leiddar af summuformúlum sínuss, kósínuss og tangens þegar hornin eru jöfn
- samsemdir jafnstæðra og oddstæðra falla
- jöfnusafn með hornaföllum þar sem samsemdin er oddstæð ef 𝑓 ( − 𝑥 ) = − 𝑓 ( 𝑥 ), f ( − x ) = − f ( x ) , en jafnstæð ef 𝑓 ( − 𝑥 ) = 𝑓 ( 𝑥 ) . f ( − x ) = f ( x ) ,
- helmingunarformúlur
- samsemdir sem eru leiddar af lækkunarformúlum og notaðar til að ákvarða hornafallagildi hálfs horns
- formúla sem breytir margfeldi í summu
- hornafallasamsemd sem gerir kleift að rita margfeldi hornafalla sem summu eða mismun hornafalla
- Pýþagórasarsamsemdir
- jöfnusafn með hornaföllum sem byggist á eiginleikum rétthyrndra þríhyrninga
- kvótasamsemdir
- samsemdapar sem byggist á því að tangens er hlutfall sínuss og kósínuss en kótangens er hlutfall kósínuss og sínuss
- umhverfusamsemdir
- jöfnusafn sem felur í sér umhverfur grunnskilgreininga hornafallanna
- lækkunarformúlur
- samsemdir sem eru leiddar af tvöföldunarformúlum og notaðar til að lækka veldi hornafalls
- einföld sveifluhreyfing
- endurtekin hreyfing sem lýsa má með lotubundinni sínuslaga sveiflu
- formúla sem breytir summu í margfeldi
- hornafallasamsemd sem gerir kleift, með innsetningu, að rita summu hornafalla sem margfeldi hornafalla