9.2.0 Yfirlit kennslustundar

9.2.0 Yfirlit kennslustundar

9.2.0 • Yfirlit kennslustundar

Í þessari kennslustund lærir þú að finna lausnir annars stigs jöfnu með því að raða stæðunni öðrum megin í jöfnunni upp á nýtt og umrita hana þannig að hún verði stæða sem er ferningur. Það kallast að fylla í ferninginn.

Þegar þú lýkur þessari kennslustund munt þú geta:

  • • útskýrt hvað felst í því að fylla í ferninginn og lýst hvernig það er gert.
  • • leyst annars stigs jöfnur með því að fylla í ferninginn og finna ferningsrætur.

Hér eru verkefnin sem munu hjálpa þér að ná þessum markmiðum:

  • • 9.2.1 Mismunandi form stæðna sem eru ferningar
  • • 9.2.2 Staðalform og þáttað form stæðna sem eru ferningar
  • • 9.2.3 Að fylla í ferninginn
  • • 9.2.4 Að búa til stæðu sem er ferningur

Eftir það æfir þú þig og rifjar upp:

  • • 9.2.5 Æfingar
  • • 9.2.6 Samantekt kennslustundar