Inngangur

Efnisyfirlit kafla
Inngangur
Hvernig ákveður þú hvað þú eigir að gera þegar þú stendur frammi fyrir erfiðri siðferðisklípu? Ef þú ert óviss um hvað sé rétt við tilteknar aðstæður, á hvað reiðir þú þig þá til leiðsagnar svo að þú getir breytt rétt? Segjum til dæmis að þú hafir fengið bíl vinar að láni. Þú vilt fylla eldsneytistankinn áður en þú skilar bílnum en veist ekki hvaða eldsneyti hann notar. Þú ert að flýta þér og nærð ekki símasambandi við vin þinn. Hvað gerir þú? Skilarðu bílnum án þess að fylla á hann? Giskarðu út í bláinn eða spyrð starfsmann bensínstöðvarinnar og vonar að eldsneytið sem þú velur skemmi ekki vélina?
Það sem þig kann að vanta er góð kenning í boðandi siðfræði. Boðandi siðfræði leitast við að móta viðmið og reglur um siðferðilega breytni sem geti leiðbeint hegðun okkar með markvissum hætti. Kenning í boðandi siðfræði er kerfisbundin greinargerð um siðferði sem tekur á mikilvægum spurningum um það hvernig leiðbeina megi siðferðilegri breytni. Í lok kaflans munt þú geta beitt ólíkum kenningum í boðandi siðfræði til að styðja ákvarðanir þínar, hvort sem er á bensínstöðvum eða annars staðar.