Sjálfsprófun
Sjálfsprófun
Eftirfarandi fjárhæðir gilda um land A: útflutningur 20 milljarðar króna, opinber kaup 1.000 milljarðar, fjárfesting fyrirtækja 50 milljarðar, innflutningur 40 milljarðar og einkaneysla 2.000 milljarðar. Hvert er VLF landsins?
Flokkaðu eftirfarandi atriði eftir því hvort þau teljast með í VLF eða ekki.
- Greiðsla fyrir sjúkrahúsdvöl
- Lengri meðalævi
- Greidd barnagæsla hjá skráðu dagforeldri
- Ólaunuð barnagæsla hjá ömmu
- Sala á notuðum bíl
- Sala á nýjum bíl
- Fjölbreyttara úrval osta í matvöruverslunum
- Járn sem er notað í stál við framleiðslu ísskáps sem neytandi kaupir
Hversu mikið jókst VLF að nafnvirði frá 1980 til 1990 samkvæmt töflu 19.5? Hversu stóran hluta aukningarinnar má rekja til meiri framleiðslu að raunvirði og hversu stóran hluta til verðbólgu?
Skoðaðu mynd 19.10 án þess að styðjast við töflu 19.7. Ef efnahagssamdráttur er skilgreindur sem verulegur samdráttur í framleiðslu þjóðarbúsins, hvaða samdráttarskeið eftir 1960 má þá greina, önnur en samdráttinn 2007–2009? Hér þarf að leggja mat á línuritið.
Hversu mörg samdráttarskeið hafa orðið frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar árið 1945 samkvæmt töflu 19.7?
Hve marga mánuði stóð samdráttarskeið að meðaltali frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar samkvæmt töflu 19.7?
Hve marga mánuði stóð þensluskeið að meðaltali frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar samkvæmt töflu 19.7?
Getur heildar-VLF aukist þótt VLF á mann minnki? Getur heildar-VLF minnkað þótt VLF á mann aukist? Útskýrðu hvaða breyting á mannfjölda gæti valdið hvorri niðurstöðu.
VLF Mið-Afríkulýðveldisins er 1.107.689 milljónir CFA-franka og íbúarnir eru 4,862 milljónir. Einn Bandaríkjadalur jafngildir 284,681 CFA-franka. Reiknaðu VLF á mann í Bandaríkjadölum.
Útskýrðu stuttlega hvort hvert eftirfarandi atriði valdi því að VLF ofmeti eða vanmeti breytinguna á lífskjörum, þegar lífskjör eru skilgreind víðar en út frá markaðsframleiðslu.
- Umhverfið verður mengaðra
- Glæpatíðni lækkar
- Vöruúrval neytenda verður fjölbreyttara
- Ungbarnadauði minnkar