Mynd 5.1. Margar netstreymisveitur, þar á meðal Netflix, bjóða mismunandi verð eftir þjónustustigi. Þá vaknar spurningin: Hvaða áhrif hefur verðið á kaupákvarðanir neytenda? (heimild: breytt útgáfa af „160906_FF_CreditCardAgreements“ eftir kdiwavvou/Flickr, almenningseign)
Inngangur að teygni
Nemendur í hagfræði þekkja lögmál eftirspurnar: Hærra verð dregur úr eftirspurðu magni. Lögmálið segir þó ekki hversu mikið magnið minnkar. Lögmál framboðs segir með sama hætti að hærra verð auki framboðið magn. En hversu mikið eykst það? Í þessum kafla lærum við að svara slíkum spurningum og sjáum hvers vegna svörin skipta miklu máli í raunveruleikanum.
Til að svara þessum spurningum þurfum við að skilja hugtakið teygni. Í hagfræði mælir teygni hversu næm ein breyta er fyrir breytingu á annarri. Hugsum okkur að tveimur hlutum sé sleppt af svölum á annarri hæð. Annar er tennisbolti, hinn múrsteinn. Hvor þeirra skoppar hærra? Tennisboltinn, að sjálfsögðu. Við segðum að hann hefði meiri teygni.
Tökum dæmi úr hagfræði. Skattur á sígarettur er svonefndur „syndaskattur“, það er skattur á vöru sem talin er skaðleg, líkt og áfengi. Í Bandaríkjunum leggja bæði fylki og alríkið skatta á sígarettur. Árið 2021 var fylkisskatturinn lægstur 17 sent á pakka í Missouri en hæstur 4,35 Bandaríkjadalir á pakka í Connecticut og New York. Meðaltal fylkisskattsins var 1,76 dalir á pakka. Alríkisskatturinn var sama ár 1,01 dalur á pakka. Obama-stjórnin lagði árið 2015 til að alríkisskatturinn yrði hækkaður um tæpan dal, í 1,95 dali á pakka. Lykilspurningin er þessi: Hversu mikið myndu sígarettukaup dragast saman við slíka hækkun?
Skattar á sígarettur hafa tvö markmið: að afla hinu opinbera tekna og draga úr sígarettuneyslu. Ef skattahækkun dregur verulega úr neyslu fækkar seldum pökkum svo mikið að skatturinn á hvern pakka skilar litlum viðbótartekjum. Hafi hækkunin lítil áhrif á neyslu aukast skatttekjurnar hins vegar meira. Þegar stjórnvöld meta áhrif þess að breyta sígarettuskatti þurfa þau því að vita hversu næm neyslan er fyrir skattbreytingunni. Sama úrlausnarefni blasir við fyrirtækjum. Fyrirtæki sem hyggst hækka verð þarf að meta hversu mikið eftirspurt magn minnkar. Setji það vöru á útsölu gerir það á hinn bóginn ráð fyrir — eða vonar — að verðlækkunin auki eftirspurt magn verulega.