Verkefni
Verkefni
Eftirspurnarferill er gefinn með jöfnunni P = 48 – 3Q. Reiknaðu verðteygni eftirspurnar þegar magnið eykst úr 5 í 6.
Eftirspurnarferill er gefinn með jöfnunni P = 2/Q. Reiknaðu verðteygni eftirspurnar annars vegar þegar verðið lækkar úr 5 í 4 og hins vegar þegar það lækkar úr 9 í 8. Áttu von á sömu niðurstöðu í báðum tilvikum? Rökstyddu svarið.
Framboðsferill er gefinn með jöfnunni 4P = Q. Reiknaðu verðteygni framboðs annars vegar þegar verðið hækkar úr 3 í 4 og hins vegar þegar það hækkar úr 7 í 8. Áttu von á sömu niðurstöðu í báðum tilvikum? Rökstyddu svarið.
Framboðsferill er gefinn með jöfnunni P = 3Q – 8. Reiknaðu verðteygni framboðs þegar verðið hækkar úr 4 í 7.
Framboð málverka Leonardos da Vinci, sem málaði Mónu Lísu og Síðustu kvöldmáltíðina og lést árið 1519, er mjög óteygið. Teiknaðu framboðs- og eftirspurnarmynd með viðeigandi teygni ferlanna og sýndu hvernig eftirspurn eftir verkunum ákvarðar verð þeirra.
Gerðu ráð fyrir að leikvangur fyrir atvinnuleiki í amerískum fótbolta hafi 70.000 sæti. Hvernig lítur framboðsferill aðgöngumiða á leiki á þessum leikvangi út? Rökstyddu svarið.
Við nýrnabilun þarf sjúklingur skilunarmeðferð nema nýraígræðsla komi til; án skilunar eða nýraígræðslu deyr sjúklingurinn. Teiknaðu framboðs- og eftirspurnarmynd með viðeigandi teygni ferlanna og sýndu hvernig framboð skilunarvéla ræður mestu um verð þeirra.
Gerðu ráð fyrir að framboð lítt sérhæfðs vinnuafls sé fremur teygið en eftirspurn atvinnurekenda eftir því fremur óteygin. Ef markmið stjórnvalda er að fjölga störfum fyrir þennan hóp, er þá árangursríkara að hliðra framboðsferli vinnuafls eða eftirspurnarferli þess? Hvor leiðin hentar betur ef markmiðið er að hækka laun hópsins? Rökstyddu svörin með framboðs- og eftirspurnarmyndum.