Inngangur

Yfirlit kafla
Hvað er þroski á lífsleiðinni?
Kenningar um þroska á lífsleiðinni
Þroskastig
Dauðinn og ferlið að deyja
Inngangur
Velkomin í sögu lífs þíns. Í þessum kafla skoðum við heillandi frásögnina af því hvernig þú hefur vaxið og þroskast í þá manneskju sem þú ert í dag. Við skoðum líka nokkrar hugmyndir um hver þú verður í framtíðinni. Saga þín er saga um þroska á lífsleiðinni (mynd 9.1), frá upphafi lífs til enda.
Ferli mannlegs vaxtar og þroska er augljósast á ungbarna- og barnsaldri, en þroski þinn á sér stað einmitt núna og mun halda áfram, mínútu fyrir mínútu, það sem eftir er ævinnar. Hver þú ert í dag og hver þú verður í framtíðinni veltur á samspili erfða, umhverfis, menningar, tengsla og fleiri þátta eftir því sem þú ferð í gegnum hvert æviskeið. Þú hefur sjálf eða sjálfur upplifað margt af því sem fjallað er um í þessum kafla. Hugleiddu nú hvað sálfræðivísindin hafa að segja um líkamlegan þroska, vitsmunaþroska og sálfélagslegan þroska þinn, frá móðurkviði til grafar.