4.6.0 Yfirlit kennslustundar

Í þessari kennslustund þjálfar þú áfram hæfni þína til að lýsa eiginleikum grafa. Þegar þú greinir gröf notar þú stærðfræðihugtök eins og skurðpunkt, hágildi og lággildi. Þú tengir líka eiginleika grafa við eiginleika fallanna sem gröfin sýna.

Að þessari kennslustund lokinni getur þú:

  • greint mikilvæga eiginleika á gröfum falla og útskýrt hvað þeir þýða í þeim aðstæðum sem föllin lýsa;
  • útskýrt og notað hugtökin skurðpunktur við x-ás, skurðpunktur við y-ás, hágildi og lággildi þegar þú ræðir um föll og gröf þeirra;
  • greint mikilvæga eiginleika línulegra falla.

Þessi verkefni hjálpa þér að ná markmiðunum:

  • 4.6.1 Að túlka staðhæfingar í falltáknun
  • 4.6.2 Að greina gröf falla
    • 4.6.2 Sjálfspróf
    • 4.6.2 Ítarefni
  • 4.6.3 Að tengja saman graf og orðalýsingu á falli
    • 4.6.3 Sjálfspróf
    • 4.6.3 Ítarefni
  • 4.6.4 Helstu eiginleikar línulegra falla
    • 4.6.4 Sjálfspróf
    • 4.6.4 Ítarefni
  • 4.6.5 Að túlka gröf

Að lokum æfir þú þig og rifjar efnið upp.

  • 4.6.6 Æfingar
  • 4.6.7 Samantekt kennslustundar