Inngangur

Efnisyfirlit kaflans
Inngangur
Hoover-stíflan er einstakt verkfræðiafrek. Þegar Mead-vatn, uppistöðulónið ofan við stífluna, er fullt verkar mikill kraftur á stífluna. Vatnsborð lónsins er þó mjög breytilegt vegna þurrka og breytilegrar vatnsnotkunar. Síðar í kaflanum notum við ákveðin heildi til að reikna kraftinn sem verkar á stífluna þegar lónið er fullt og könnum hvernig breytilegt vatnsborð hefur áhrif á kraftinn (sjá dæmi 2.28).
Kraftur vegna vökvastöðuþrýstings er aðeins eitt af mörgum viðfangsefnum í þessum kafla þar sem við notum ákveðin heildi. Ákveðin heildi eru öflugt tæki til að skilja heiminn í kringum okkur og lýsa honum með stærðfræðilegum líkönum. Þau nýtast meðal annars í rúmfræði til að reikna yfirborðsflatarmál og rúmmál, í eðlisfræði til að reikna massa og vinnu og í líkönum af vexti og hnignun.