Inngangur að runum, líkum og talningarfræði

Efnisyfirlit kafla
Inngangur að runum, líkum og talningarfræði
Sá sem vinnur í happdrætti þarf að taka stórar ákvarðanir um hvað gera skuli við vinninginn. Kaupa nýtt hús? Lúxusblæjubíl? Fara í skemmtisiglingu umhverfis jörðina?
Líkurnar á að vinna í happdrætti eru litlar, en okkur finnst öllum gaman að láta okkur dreyma um hvað við gætum keypt fyrir vinninginn. Ein fyrsta ákvörðun happdrættisvinningshafa er hvort taka skuli vinninginn sem eingreiðslu eða sem röð reglulegra greiðslna, sem nefnist jöfn greiðsluröð, yfir langan tíma.
Ákvörðunin byggist oft á mörgum þáttum, svo sem skattaáhrifum, vöxtum og fjárfestingarstefnu. Einnig þarf að huga að persónulegum ástæðum og færa má margvísleg rök fyrir hvorum kostinum sem er. Flestir happdrættisvinningshafar velja þó eingreiðsluna.
Í þessum kafla könnum við stærðfræðina að baki aðstæðum sem þessum. Við skoðum jafnar greiðsluraðir ítarlega. Einnig kynnumst við þeirri grein stærðfræðinnar sem gerir okkur kleift að reikna fjölda leiða til að velja happdrættistölur og líkurnar á að vinna.