Sjálfsprófun
Sjálfsprófun
Sölutekjur fyrirtækis námu 1.000 milljónum króna á síðasta ári. Launakostnaður var 600 milljónir króna, kostnaður við raunfjármagn 150 milljónir og hráefniskostnaður 200 milljónir. Hver var bókhaldslegur hagnaður fyrirtækisins?
Höldum áfram með dæmi 7.1. Verksmiðjan stendur á landi í eigu fyrirtækisins sem mætti leigja út fyrir 30 milljónir króna á ári. Hver var hagrænn hagnaður fyrirtækisins á síðasta ári?
Skíðaverksmiðjan Snjóspor framleiðir skíði fyrir byrjendur. Fastur kostnaður er 30.000 kr. Fylltu út töflu 7.16 með heildarkostnaði, meðalbreytilegum kostnaði, meðalheildarkostnaði og jaðarkostnaði.
| Magn | Breytilegur kostnaður | Fastur kostnaður | Heildarkostnaður | Meðalbreytilegur kostnaður | Meðalheildarkostnaður | Jaðarkostnaður |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 kr. | 30.000 kr. | ||||
| 1 | 10.000 kr. | 30.000 kr. | ||||
| 2 | 25.000 kr. | 30.000 kr. | ||||
| 3 | 45.000 kr. | 30.000 kr. | ||||
| 4 | 70.000 kr. | 30.000 kr. | ||||
| 5 | 100.000 kr. | 30.000 kr. | ||||
| 6 | 135.000 kr. | 30.000 kr. |
Byggðu á svörum þínum við dæmi 7.3 um Snjóspor. Gerðu ráð fyrir að fyrirtækið framleiði fimm einingar og selji hverja þeirra á 25.000 kr.
- Hver verður hagnaður eða tap fyrirtækisins?
- Hvernig má sjá af meðalheildarkostnaði hvort fyrirtækið hagnast eða tapar við þetta verð?
- Eykur fimmta einingin hagnað fyrirtækisins við þetta verð?
Tveir málarar geta málað 20 m2 af vegg á klukkustund en þrír málarar 27,5 m2. Hver er jaðarframleiðsla þriðja málarans?
Skoðaðu aftur dæmið í töflu 7.13 og töflu 7.14. Ef kostnaður á starfsmann helst 40.000 kr. en kostnaður á vél lækkar í 50.000 kr., hver verður heildarkostnaður framleiðsluaðferðanna þriggja? Hvaða aðferð ætti fyrirtækið að velja og hvers vegna?
Gerðu nú ráð fyrir að kostnaður á vél hækki í 55.000 kr. en kostnaður á starfsmann haldist 40.000 kr. Hver verður heildarkostnaður aðferðanna þriggja og hvaða aðferð ætti fyrirtækið að velja?
Bílaframleiðsla býr við verulega stærðarhagkvæmni. Fjórir innlendir framleiðendur starfa á markaði þar sem heildareftirspurn er aðeins 2,5 sinnum hagkvæmasta framleiðslumagnið við lágmark ferils meðalkostnaðar til langs tíma (LRAC). Hvað má búast við að gerist í atvinnugreininni til langs tíma?