Spurningar til gagnrýninnar hugsunar
Spurningar til gagnrýninnar hugsunar
Gerum ráð fyrir að þú viljir meta ytri kostnað kolefnislosunar frá raforkuveri til fjár. Hvaða upplýsingar og gögn þyrftir þú til að mæla þennan ytri kostnað, en ekki samfélagslegan kostnað í heild?
Myndu umhverfissinnar styðja reglusetningu með boðum og bönnum til að draga úr mengun? Rökstyddu svarið.
Berðu saman tvær leiðir til að vernda fíla gegn veiðiþjófum í Afríkuríkjum. Í fyrri leiðinni stofna stjórnvöld víðáttumikla þjóðgarða þar sem nægt búsvæði er fyrir fíla. Heimamönnum er alfarið bannað að fara inn í garðana eða skaða fílana og búsvæði þeirra. Í síðari leiðinni stofna stjórnvöld einnig þjóðgarða en tilnefna tíu þorp við jaðar þeirra sem opinberar ferðamannamiðstöðvar. Þar geta ferðamenn gist og tekið þátt í leiðsöguferðum um þjóðgarðana. Greindu ólíka hvata íbúa þorpanna, sem búa oft við fátækt, samkvæmt hvorri leið. Hvor leiðin er líklegri til að styrkja fílastofninn?
Getur kerfi framseljanlegra losunarheimilda virkað ef það nær til þúsunda fyrirtækja? Rökstyddu svarið.
Getur kerfi framseljanlegra losunarheimilda leitt til þess að mengun verði engin? Rökstyddu svarið.
Er algert mengunarleysi hagkvæmasta niðurstaðan? Rökstyddu svarið.
Er skynsamleg stefna frá hagrænu sjónarmiði að stefna að því að útrýma allri mengun? Rökstyddu svarið.
Endurvinnsla er tiltölulega ódýr leið til að draga úr stórum hluta þeirrar umhverfismengunar sem plast, gler og önnur úrgangsefni valda. Er engu að síður skynsamlegt að skylda alla til endurvinnslu? Rökstyddu svarið.
Getur mjög mikil mengun hamlað efnahagsþróun hátekjuríkis? Rökstyddu svarið.
Hvernig geta hátekjuríki hagnast á því að greiða stóran hluta kostnaðarins við að draga úr mengun sem verður til í lágtekjuríkjum?
Tækninýjungar hliðra framleiðslumöguleikajaðrinum. Skoðaðu myndina sem þú teiknaðir í æfingu 12.13. Hvers konar tækni ætti ríki að styðja? Ætti að styðja „hreina“ tækni umfram aðra tækni? Rökstyddu svarið.