1212 Umhverfisvernd og neikvæð ytri áhrif
Lykilhugtök
Lykilhugtök
- ytri viðbótarkostnaður
- viðbótarkostnaður sem fellur á þriðju aðila utan framleiðsluferlisins þegar ein framleiðslueining til viðbótar er framleidd
- líffræðileg fjölbreytni
- allur breytileiki í erfðaefni dýra og plantna
- reglusetning með boðum og bönnum
- lög sem kveða á um leyfilegt magn mengunar og geta jafnframt tilgreint þá mengunarvarnatækni sem nota skal
- ytri áhrif
- áhrif markaðsviðskipta á þriðja aðila sem stendur utan þeirra; einnig nefnd úthrif
- alþjóðleg ytri áhrif
- ytri áhrif sem ná yfir landamæri og ekkert eitt ríki getur leyst með einhliða aðgerðum
- markaðsbrestur
- þegar markaður ráðstafar ekki framleiðsluþáttum á hagkvæman hátt þannig að tekið sé tillit til samfélagslegs kostnaðar og ávinnings; ytri áhrif eru ein tegund markaðsbrests
- kerfi framseljanlegra losunarheimilda
- kerfi þar sem fyrirtæki fær heimildir til að losa tiltekið magn mengunar og getur selt öðrum fyrirtækjum þær heimildir sem það nýtir ekki
- neikvæð ytri áhrif
- áhrif markaðsviðskipta sem valda þriðja aðila utan viðskiptanna tjóni
- mengunargjald
- skattur sem lagður er á fyrirtæki eftir því hve mikilli mengun það veldur; einnig nefndur mengunarskattur
- jákvæð ytri áhrif
- áhrif markaðsviðskipta sem veita þriðja aðila utan viðskiptanna ávinning
- eignarréttindi
- lögvarin réttindi eiganda sem aðrir mega ekki skerða án þess að greiða bætur
- samfélagslegur kostnaður
- heildarkostnaður sem samanstendur af einkakostnaði fyrirtækja og kostnaði sem framleiðslan leggur á þriðju aðila, svo sem mengunarkostnaði
- úthrif
- sjá ytri áhrif